Sitthvað í Skarpi í dag

Það má með góðum vilja segja að fjöllin séu bara nokkuð sexí á þessari mynd sem prýðir forsíðu Skarp…
Það má með góðum vilja segja að fjöllin séu bara nokkuð sexí á þessari mynd sem prýðir forsíðu Skarps í dag. Mynd: JS

Þingeyska héraðsfréttablaðið Skarpur kemur að venju út í dag. Í blaðinu er fjallað um útboð Landsnets vegna Þeistareykjalínu og Kröflulínu. Hinn eini sanni Völsungur að eðli, ætt og upplagi er kynntur til sögunnar. Rætt er við dömur úr Stúlknakór Húsavíkur um tónleikahald og Danmerkurferð. Málefni Húsavíkurstofu koma við sögu. Hagyrðingar kveða um nýliðna „Voðaviku.“

Guðrún S. Kristjánsdóttir skrifar um sýningu Öxarfjarðarskóla á Ronju ræningjadóttur. Jónasína Skarphéðinsdóttir er Þingeyingur í þaula. Greint frá Hvatningarverðlaunum AÞ sem Gugga í Lóni hlaut fyrir Sælusápurnar góðu. 89 ára afmæli Völsungs eru gerð skil í máli og myndum, aðallega myndum. Hinn pólski myndasmiður Mika kemur við sögu. Svo og göturnar Fiskifjara og Búðarfjara, sem og sitthvað fleira sem er í Skarpi í dag.

Nýjast