Símaskráin 2009 komin út – stútfull af fróðlegu efni

Símaskráin 2009 er komin út - og auk þess að geyma um 320.000 símanúmer er hún full af fróðlegu efni sem getur komið sér vel í dagsins önn. Sem dæmi má nefna kort af öllum landshlutum og götukort af bæjarfélögum, flokkað yfirlit yfir veitingastaði og ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir þá sem eru að skipuleggja ferðalög. T.d. er þar að finna upplýsingasíður um sundlaugar og golfvelli, yfirlit yfir viðburði og bæjarhátíðir um land allt í sumar og ýmsar aðrar hagnýtar upplýsingar.  

Garðarshólmi, myndasaga Hugleiks Dagssonar í Símaskránni í fyrra, vakti mikla athygli og var fyrsta upplag af skránni rifið út á þremur dögum. Áberandi var að yngra fólk sótti Símaskrána í mun meira mæli í fyrra þegar myndasagan spurðist út. Hugleikur var fenginn til að teikna framhaldssögu, sem prýðir Símaskrána í ár, auk þess sem hann teiknaði forsíðumyndina. Myndasagan er óbeint framhald af Garðarshólma, en þar koma fram fleiri nýjar persónur.

Gulu síðurnar eru fremst í bókinni og innihalda yfir 2.000 vöru- og þjónustuflokka. Efnisyfirlit Gulu síðnanna er á ensku og pólsku, auk íslensku. Þar er innskot með veitingastöðum sem flokkaðir eru á handhægan máta, þannig að auðvelt er að fá yfirsýn yfir úrval staða með ítalskan mat, kínverskan, indverskan, heimilismat og skyndibita, svo að nokkuð sé nefnt. Við leit á Gulu síðunum þarf ekki að vita nafn fyrirtækis, heldur er nóg að fletta upp á leitarorði, t.d. læknir, málari, hárgreiðslustofa o.s.frv.

Símaskráin er umhverfisvæn og pappírinn sem í hana er notaður kemur úr sjálfbærum skógum. Blek, lím og pappír, sem notað er í bókina, er að öllu leyti niðurbrjótanlegt og algjörlega skaðlaust náttúrunni. Hvert eintak vegur um tvö kíló og er bókin 1.620 blaðsíður. Hin hefðbundna Símaskrá er afhent án gjalds en harðspjaldaútgáfan kostar kr. 700. Ritstjóri Símaskrárinnar er Guðrún María Guðmundsdóttir.


Á höfuðborgarsvæðinu verður hægt að nálgast Símaskrána í verslunum Krónunnar, Símans, Vodafone og á bensínstöðvum Skeljungs og Olís. Á bensínstöðvunum og hjá Símanum við Ármúla verða einnig móttökugámar fyrir eldri Símaskrár. Á landsbyggðinni verður Símaskráin afhent á öllum afgreiðslustöðum Póstsins þar sem einnig verður tekið við eldri skrám. Ennfremur verður hægt að nálgast skrána í verslunum Símans og Vodafone á Akureyri. Á dreifbýlustu svæðunum sér Pósturinn um að keyra Símaskrána heim til viðtakenda.

Nýjast