Sigurður Ingi forsætisráðherra

Fréttin hefur verið uppfærð:

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur lagt til að hann stígi sjálfur til hliðar og Sigurður Ingi Jóhannsson taki við sem forsætisráðherra og stjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokk verði haldið áfram og að Sigmundur Davíð haldi áfram sem formaður flokksins. Þingflokkur Framsóknarflokksins samþykkti þessa tillögu Sigmundar Davíðs en hann heldur áfram sem formaður flokksins. Þetta var niðurstaða þingflokksfundar Framsóknarflokksins sem var að ljúka.

Niðurstöðu fundar Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins með Forseta Íslands sem stendur yfir núna er beðið í ofvæni. 

Uppfært:

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er kominn af fundi forseta Íslands. Hann greindi frá því að hann sé tilbúinn til viðræðna við Sigurð Inga Jóhannsson varaformann Framsóknarflokksins um áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf. Hann segist ánægður með árangur ríkisstjórnarinnar það sem af er kjörtímabili og segir það brýnt að þeim mikilvægu málum sem enn er ólokið verði áfram haldið og nefnir þar sérstaklega afnám gjaldeyrishafta. Bjarni segist ekki gera kröfu um að hann fái forsætisráðuneytið.

Nýjast