Sigur hjá Þór á heimavelli - Jafnt hjá KA á Skaganum

Þór vann í dag afar mikilvægan sigur á Víkingi frá Ólafsvík er liðin mættust á Akureyrarvelli í dag í sjöundu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Eftir markalausan fyrri hálfleik komust heimamenn í Þór í 3-0 í seinni hálfleik. Gestirnir náðu hinsvegar að minnka muninn í 3-2 og þar við sat. Á sama tíma gerðu ÍA og KA jafntefli á Akranesvelli, 1-1. Það var Arnar Már Guðjónsson sem skoraði mark KA í leiknum.

Leikur Þórs og Víkings Ó. fór rólega af stað og lítið markvert gerðist framan af fyrri hálfleik, heimamenn voru þó ívið sterkari. Besta færi fyrra hálfleiksins fékk Aleksandar Linta fyrir heimamenn er hann fékk boltann inn í teig gestanna, lék á varnarmann Víkings og var kominn í dauðafæri en þrumaði boltanum í hliðarnetið.

Staðan markalaus í hálfleik.

Seinni hálfleikur leiksins var heldur líflegri. Á 49. mínútu fengu gestirnir dæmda aukaspyrnu á stórhættulegum stað rétt fyrir utan teig. Josip Marosevic tók spyrnuna fyrir gestina og þrumaði boltanum í þverslána. Fínt skot og heimamenn sluppu með skrekkinn. Aðeins andartaki síðan var Ottó Hólm Reynisson kominn í fínt færi fyrir heimamenn en skot hans fór framhjá markinu.

Fyrsta mark leiksins kom eftir 58. mínútna leik og það gerði Sveinn Elías Jónsson fyrir heimamenn. Atli Sigurjónsson átti skot að marki gestanna sem markvörður Víkings varði en náði ekki að halda boltanum og Sveinn Elías fylgdi vel á eftir og skoraði á autt markið. 1-0 fyrir Þór.

Heimamenn héldu áfram að sækja og aðeins fjórum mínútum eftir markið var Sveinn Elías nálægt því að bæta við sínu öðru marki í leiknum er hann skallaði boltann framhjá markinu úr fínu færi eftir sendingu frá Atla Sigurjónssyni.

Á 70. mínútu komust heimamenn í 2-0 er Hreinn Hringsson, nýkominn inn á sem varamaður, kom boltanum í netið eftir darraðadans í teig gestanna og staða Þórs orðinn ansi vænleg.

Heimamenn voru þó ekki hættir. Aðeins fimm mínútum síðar skoraði Einar Sigþórsson þriðja mark Þórs í leiknum er hann fékk sendingu inn fyrir vörn gestanna og skoraði örugglega með góðu skoti. Staðan orðinn 3-0 fyrir Þór og allt leit út fyrir öruggan sigur heimamanna.

Eitthvað voru leikmenn Þórs værukærir í restina því leikmenn Víkings Ó. náðu að minnka muninn í 3-2 á skömmum tíma. Á 83. mínútu var það Josip Marosevic sem skoraði fyrir gestina eftir að hafa komist inn í sendingu inn í vörn Þórs og skoraði með fínu skoti framhjá Atla Má Rúnarssyni í marki Þórs. Gestirnir náðu svo öðru marki á 89. mínútu er Alfreð Elías Jóhannsson þrumaði boltanum í netið inn af stuttu færi. Staðan skyndilega orðinn 3-2.

Matthías Örn Friðriksson fékk sannkallað dauðafæri á uppbótartíma til þess að innsigla sigur heimamanna er hann fékk sendingu fyrir mark gestanna frá Hreini Hringssyni en Matthías þrumaði boltanum hátt yfir markið af stuttu færi.

Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 3-2 sigur Þórs. Eftir leikinn er Þór kominn í sex stig í deildinni og hafa lyft sér upp í 9. sætið. KA- menn hafa 11 stig í 6. sæti deildarinnar.

Nýjast