Sigríður Huld Jónsdóttir hefur verið ráðin skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri til fimm ára frá 1. janúar 2016. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta-og menningarmálaráðuneytinu. Sigríður Huld er með BSc í hjúkrunarfræði, kennsluréttindi í framhaldsskóla og diplóma í opinberri stjórnsýslu. Hún hefur verið aðstoðarskólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri frá 2006 og var settur skólameistari skólans skólaárið 2011 - 2012.