Sigrar hjá KA og Þór í yngri flokkunum

Helgin var góð hjá yngri flokkum KA og Þór í knattspyrnunni en allir leikirnir fóru fram í Boganum. Annar flokkur KA sigraði lið Viking/Berseka þar sem lokatölur urður 4-3 fyrir KA-menn. Arnór Egill Hallson skoraði tvö mörk fyrir heimamenn og þeir Númi Stefánsson og Davíð Rúnar Bjarnason skoruðu sitt markið hvor.

2. flokkur Þórs sigraði lið Víkinga með fjórum mörkum gegn tveimur. Kristján Steinn Magnússon skoraði tvö mörk fyrir Þórsara og þeir Jóhann Helgi Hannesson og Lars Óli Jessen skoruðu settu eitt mark hvor.

Loks sigraði lið Þórs í 4. flokki kvenna lið Aftureldingar. Lokatölur urðu 2-0 og þær Bergþóra Agnes Bjarnadóttir og Katla Ósk Káradóttir sáu um mörkin fyrir heimamenn.

Nýjast