Það virðist gilda það sama um varnaðarorð og góða vísu. Verður aldrei of oft kveðin.
Glæpahringir sem herja á fólk til að komast inn í heimabanka verða sífellt tæknilegri og aðferðir þeirra trúverðuglegri.
Borið hefur á að svikarar hringi í fólk og hafi af þeim fé með ýmiss konar blekkingum. Það nýjasta er að hringt er úr, að því virðist, íslenskum númerum en svikararnir eru þó enskumælandi. Tilboð þeirra eru oft of góð til að vera sönn, og þá er það oft málið, þetta eru svik.
Dæmi er um að þeir bjóði upp á fjárfestingatækifæri í rafmynt, eða tilkynna að viðkomandi eigi eignir í rafmynt. Þá er fólki boðið að fá greitt fyrir að vera milliliðir í fjárfestingum í rafmynt.
Í einhverjum tilvikum hafa svikarnir fengið fólk til að hlaða niður forritinu AnyDesk á tækin sín. Þannig er verið að veita þeim aðgang að símtækinu. Þá hefur fólk verið narrað til að gefa upp leyninúmer rafrænna skilríkja og komast þannig inn á heimabanka og geta tæmt reikninga og misnotað kreditkort. Svikarar hafa einnig notað greiðslukortaupplýsingar til að kaupa rafmynt hjá Bintense. Með þessu eru fjármunir tapaðir og fólk situr uppi með sárt ennið.
Hér eru nokkur varnaðarorð sem eiga við nú sem endranær: