Ein sjúkraflugvél á vegum Mýflugs sér alfarið um að fljúga með sjúklinga sem eru með grun um eða staðfest smit af Covid-19. Greint er frá þessu á Facebooksíðu Slökkviliðs Akureyrar. Þar segir að tekin hafi verið ákvörðun um þetta í samráði við Mýflug í síðustu viku.
Sjúkraflugvélin hefur nú þegar flogið með nokkra smitaða einstaklinga. Verður fyrirkomulagið með þessum hætti þar til faraldurinn gengur yfir. Segir í færslunni að þetta fyrirkomulag komi sér afar vel því ekki sé hægt að fara í annað flug fyrr en búið sé að þrífa vélina þegar flogið hafi verið með smitaða.