Náttúruverndarsamtökunum Landvernd þykir undarlegt ef ríkisstjórnin ætlar að skipta sér af stöðvun lagningu rafmagnslína frá Kröflu að iðnaðarsvæðinu að Bakka við Húsavík. Málið er nú rekið fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sem stöðvaði framkvæmdir meðan fjallað er um málið, eins og áður hefur komið fram.
Ríkisstjórnin getur ekki haft áhrif á ákvarðanir óháðra úrskurðanefnda eða dómstóla og að Alþingi geti ekki breytt lögum afturvirkt, eins og hugmyndir hafi komið upp um, þetta kemur fram í tilkynningu frá Landvernd. „Öll slík íhlutun væri einnig brot á alþjóðasamningum og rétti almennings til endurskoðunar ákvarðana um umhverfismál,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram að með fullgildingu Íslands á Árósasamningnum fyrir fimm árum eru íslensk stjórnvöld skuldbundin til að tryggja að óháður úrskurðaraðili eða dómstóll endurskoði leyfi til framkvæmda. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er með þá endurskoðun á sínu verksviði og stefnir að úrskurði í málunum er varða línurnar til Bakka í næsta mánuði.
Landvernd segir að á síðustu 14 árum hafi margítrekað verið gerðar athugasemdir við umhverfismat og skipulag vegna framkvæmda á Þeistareykjum, við Kröflu og háspennulínur að Bakka. Samtökin haga áður formlega krafist þess að fleiri valkostir yrðu skoðaðir með nýju umhverfismati raflína frá Kröflu að Bakka. Landvernd bendir á að forsendur hafi gjörbreyst frá umhverfismati 2010 vegna minni raforkuþarfar á Bakka og ekki síður vegna tækniframfara í lagningu jarðstrengja.
Landvernd setja fram þá kröfu að Landsnet sem stendur fyrir framkvæmdunum við línurnar þurfi að svara fyrir það hversu seint var sótt um framkvæmdaleyfi, það hafi ekki verið gert fyrr en í mars á þessu ári, eftir að útboðið um framkvæmdirnar var gert.
„Miðað við alvarleika málsins og forsögu mátti Landsnet búast við kæru frá umhverfisverndarsamtökum og/eða landeigendum. Landsnet hefur haft miklu meira en nægan tíma til að skoða aðra valkosti í línulögnum,“ segir í tilkynningunni.
Landvernd tekur fram að Landsnet þurfi að koma með tillögur að línulögnum og leiðum sem hlífa hraununum sem málið snýst um áður en niðurstaða úrskurðarnefndar liggi fyrir , ef það er raunverulegur vilji til að leysa þá flækju sem málið hefur ratað í. „Þrátt fyrir það láta tillögur frá fyrirtækinu enn á sér standa, tveimur og hálfum mánuði eftir að fyrsti úrskurðurinn um stöðvun framkvæmda var kveðinn upp í þessum málum,“ segir í tilkynningu Landverndar.