Sannkallaður risakrókódíll skotinn í Flórída

Krókódíllinn var um 4,5 metrar og rúm 360 kíló.
Krókódíllinn var um 4,5 metrar og rúm 360 kíló.

„Þetta var ófreskja sem nauðsynlegt var að fjarlægja,“ segir veiðimaðurinn Lee Lightsey frá Flórída eftir að hafa skotið risavaxinn krókódíl sem var hvorki meira né minna en 4,5 metrar að lengd og rúm 360 kíló að þyngd. Lightsey kom að krókódílnum í tjörn þar sem kýr hans eru vanar að fá sér að drekka.

Lightsey sem skipuleggur krókódílaveiðiferðir var á ferðinni ásamt öðrum veiðimanni þegar krókódíllinn kom upp á yfirborð tjarnarinnar í rétt um sex metra fjarlægð. Hann segist margsinnis hafa séð krókódíla á undanförnum tuttugu árum sem séu aðeins litlu minni.

„Það sem raunverulega dró athygli okkar að dýrinu er sú staðreynd að það virðist hafa verið að éta kýr af býlinu mínu vegna þess að afskræmdir líkamspartar fundust í vatninu,“ sagði Lightsey við BBC

Hann ætlar að stoppa dýrið upp og gefa kjötið af því til góðgerðarmála. /EPE

Nýjast