Í tengslum við Goðamót Þórs í 6. aldursflokki drengja, sem lauk í gær, var undirritaður samningur til þriggja ára milli
Norðlenska og Íþróttafélagsins Þórs um framhald á samstarfi þessara aðila um Goðamótin. Ingvar Már Gíslason,
markaðsstjóri Norðlenska, og Sigurjón Magnússon, fyrir hönd Íþróttafélagsins Þórs, undirrituðu samninginn.
Íþróttafélagið Þór hefur frá árinu 2003 haldið Goðamótin í knattspyrnu fyrir yngri knattspyrnumenn og koma
þátttakendur af öllu landinu. Þrjú mót eru haldin á hverjum vetri, fyrir fimmta aldursflokk drengja, sjötta aldursflokk drengja og fimmta og
fjórða aldursflokka stúlkna.
Á bilinu 450 til 500 þátttakendur taka þátt í hverju móti og auk þess mætir til leiks fjöldi þjálfara,
liðsstjóra og foreldra. Um eitthundrað sjálboðaliðar vinna að framkvæmd hvers móts, segir í fréttatilkynningu. Ingvar Már
Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, sagði við undirskrift samningsins að það skipti fyrirtækið miklu máli að koma að
Goðamótunum. "Við leggjum áherslu á að koma að samfélagslegum verkefnum á þeim stöðum þar sem við störfum og
Goðamótin eru stærsta einstaka verkefnið sem við tökum þátt í. Það er ljóst að okkar helsta vörumerki, Goði, er
oftast nefnt í tengslum við þessi mót. Okkur er það sönn ánægja að framlengja þetta samstarf til næstu þriggja ára,"
sagði Ingvar.
Sigurjón Magnússon, talsmaður Goðamótanna, segir það skipta Íþróttafélagið Þór gríðarlega miklu
máli að eiga þetta farsæla samstarf við Norðlenska um framkvæmd Goðamótanna. "Norðlenska hafði trú á þessari hugmynd
í upphafi og síðan hafa mótin vaxið og dafnað. Samstarf okkar við fyrirtækið hefur frá upphafi verið einstaklega gott og ég vil
að forráðamenn Norðlenska viti hversu gríðarlega mikils við metum þetta samstarf. Ég fagna þessum nýja samningi og vona að við
eigum samstarf við Norðlenska um Goðamótin um ókomna tíð."