Í síðustu viku framlengdi Akureyrarbær rekstrar- og samstarfssamninga við íþróttafélögin Þór og KA. Rekstrarsamningarnir gera félögunum kleift að sjá um rekstur og starfsemi íþróttamannvirkja Akureyrarbæjar á sínum félagssvæðum líkt mörg undanfarin ár.
Samningarnir sem voru undirritaðir í síðustu viku gilda út árið 2018.