Vegagerðin hefur samið við flugfélagið Mýflug um flug til Hornafjarðar. Um er að ræða samning til þriggja ára þar sem flogið er átta sinnum í viku á milli Reykjavíkur og Hornafjarðar. Samningurinn gerir ráð fyrir að flogið sé á 19 sæta flugvél og vélin sé búin jafnþrýstibúnaði.
Vegagerðin býður út samninga við flugfélög um ríkisstyrkt innanlandsflug. Í dag eru leiðirnar sem styrktar eru fimm en það eru flugleiðirnar:
Reykjavík – Bíldudalur,
Reykjavík – Gjögur,
Akureyri – Grímsey,
Akureyri – Þórshöfn/Vopnafjörður
Reykjavík – Höfn.
Auk framangreindra flugleiða hafa flugleiðirnar Reykjavík – Vestmannaeyjar og Reykjavík – Húsavík verið boðnar út en um þau verkefni hefur ekki verið samið. Fjöldi farþega á þessum flugleiðum hefur aukist talsvert og er aukningin á fyrstu sjö mánuðum þessa árs rúm 17 %.