SA Íslandsmeistari í íshokkí

Skautafélag Akureyrar tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí karla með 6:2 sigri gegn Birninum í Skautahöll Akureyrar í kvöld. Eftir jafnan fyrsta leikhluta sem endaði 1:1, tók SA öll völdin í öðrum leikhluta og skoraði þrjú mörk gegn engu Bjarnarins og hafði 4:1 forystu fyrir þriðja og síðasta leikhluta. Þar skoruðu SA tvö mörk gegn einu Bjarnarins og tryggðu sér fjögurra marka sigur.

Stefán Hrafnsson skoraði tvívegis fyrir SA í leiknum og þeir Gunnar Darri Sigurðsson, Jóhann Már Leifsson, Ingvar Þór Jónsson og Andri Freyr Sverrissin sitt markið hver. Mörk Bjarnarins skoraði Birgir Jakob Hansen.

Nánar verður fjallað um leikinn í Vikudegi á morgun.

Nýjast