Ríflega þrjú þúsund félagar BHM verða í fjögurra klukkustunda allsherjarverkfalli í dag. Langflestir þeirra, eða 2.343, fara í verkfall klukkan tólf á hádegi en hátt í sex hundruð manns eru þegar í ótímabundnu verkfalli.
Verkfallið mun hafa verulega áhrif á starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) en samkvæmt upplýsingum Vikudags verða 80 manns í verkfalli í dag, þar á meðal eru ljósmæður, lífeindafræðingar, sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfarar.
Á heimasíðu sjúkrahússins segir að lífeindafræðingar séu í ótímabundnu verkfalli frá kl. 08:00 12:00 alla daga en til kl. 16:00 í dag. Á meðan verkfalli lífeindafræðinga stendur verður einungis bráðatilfellum sinnt eins og um helgarstarfsemi væri að ræða
Ljósmæður fóru í verkfall á miðnætti og stendur þeirra verkfall yfir í sólarhring í senn alla mánudaga og fimmtudaga þar til samningar nást. Á meðan verkfalli ljósmæðra stendur verður þjónusta sem hér segir:
Ljóst er að verkföllin raska starfsemi sjúkrahússins verulega með tilheyrandi óþægindum fyrir sjúklinga. Almenna reglan er sú að að öllum bráðatilfellum er sinnt á boðuðum verkfallsdögum og áhersla lögð á að tryggja öryggi sjúklinga.