Rósa Kristín og Karl sýna á bókasafni HA

Í gær, föstudag, opnuðu Rósa Kristín Júlíusdóttir og Karl Guðmundsson (Kalli) sýninguna Himintjöld og dansandi línur á bókasafni Háskólans á Akureyri. Verkin á sýningunni eru unnin með akrýllitum á bómullargrisju. Við opnunina voru veitt hvatningarverðlaun CP-félagsins. Hugtakið CP (Cerebral Palsy) er notað yfir algengustu hreyfihömlun meðal einstaklinga.   

Karl og Rósa Kristín hafa unnið saman að myndlist í mörg ár. Samstarfið var lengi vel samspil nemanda og kennara en hefur þróast markvisst yfir í samvinnu tveggja vina, félaga í listinni. Líta má á listir sem samskiptamáta; samtal listamannsins við áhorfandann, samspil listamannsins við efnið, en líka samtal eða samleik listamanna. Rósa Kristín og Karl hafa skapað verk saman á ýmsa vegu. Karl hefur málað efni byggt á eigin hugmyndum og Rósa unnið áfram með það á mismunandi vegu, oft sem uppistöðu í textílverkum sem byggja á sjónrænu samtali beggja. Að þessu sinni málaði Rósa efnin fyrst, en Karl tók við og málaði sínar „dansandi línur". Innsetningin Himintjöld og dansandi línur er afrakstur þessa samtals eða samspils listamannanna.

Við sýningaropnunina voru veitt HVATNINGARVERÐLAUN CP félagsins á Íslandi en félagið hefur árlega afhent hvatningarverðlaun til þeirra sem eru góðar fyrirmyndir fyrir félagsmenn. Hvatningarverðlaunin í ár hlutu þau Brynhildur Þórarinsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri og rithöfundur og listamannatvíeykið Rósa Kristín Júlíusdóttir, lektor við HA og Karl Guðmundsson. Þriðjudaginn 5. maí sl. opnaði Karl Guðmundsson sýninguna KALLI25 og þótti félaginu við hæfi þegar Karl og Rósa opnuðu aðra sýninguna á tveimur vikum að hittast við opnunina og afhenda hvatningarverðlaunin í ár.

Nýjast