Reynt að halda stofn-og strætóleiðum opnum á Akureyri

Ófært er víða á Akureyri
Ófært er víða á Akureyri

Ófært er víða um land vegna vonskuveðurs. Á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir að á Akureyri verði reynt að halda stofn- og strætóleiðum opnum.

"Færðin í bænum er ekkert sérstök og mjög blindað á köflum. Ráðleggjum þeim sem eru á eindrifsbílum að hreyfa þá ekki fyrr en veðrinu slotar og akstursskilyrði verða betri, þeir sem eru á jeppum og jepplingum ættu að komast leiðar sinnar með gát og lægni. Þannig að ef þið hafið ekki brýnt erindi að fara á milli staða þá leggjum við nú bara til að fólk njóti bara inniverunnar heimafyrir," segir lögreglan.

Öxnadalsheiði og Víkurskarð eru lokuð sem og vegurinn um Ólafjarðarmúla og Siglufjarðarveg. Þá er ófært til Grenivíkur.

Ef fólk er í óvissu hvort að það komist leiðar sinnar á sínum bílum þá bendir lögreglan á að þó nokkur fjöldi fjórhjóladrifinna leigubifreiða er á ferðinni og til taks á BSO í síma 461 1010.

Nýjast