Ársreikningar Akureyrarbæjar fyrir árið 2015 hafa verið lagðir fram í bæjarráði. Fram kemur að heilt yfir hafi reksturinn verið viðunandi og rekstrarafgangur meiri en gert var ráð fyrir. Mest munar þar um sölu Norðurorku á hlut sínum í Þeistareykjum ehf en á móti kemur að rekstur aðalsjóðs var afar þungur. Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs, segir að staða aðalsjóðs geti vart talist viðunandi og að mikilvægt sé að leita leiða til að ná jafnvægi í A-hluta starfseminnar, líkt og skilyrði í fjármálareglum sveitarfélaga kveði á um, þótt heilt yfir sé fjárhagsstaða sveitarfélagsins sterk.
"Miklar hækkanir á launum í kjölfar kjarasamninga koma niður á rekstri og þar sem tekjur hafa ekki hækkað að sama skapi þá er ljóst að bregðast þarf við," segir Guðmundur Baldvin og bætir við að í kjölfar fjárhagsáætlunarvinnu í lok síðasta árs hafi verið stofnaður aðgerðarhópur um framtíðarrekstur sveitarfélagsins sem hafi það hlutverk að leita leiða til að ná jafnvægi í rekstri A-hluta. "Vinnu aðgerðarhópsins er að ljúka þessa dagana og ég er bjartsýnn á að okkur takist að ljúka því verkefni sem hópnum var falið og að við náum jafnvægi í rekstri sveitarfélagsins til framtíðar."
Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og eignasjóð gatna. Til B–hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir Akureyrarbæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.
Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 19. apríl og 3. maí nk. (akureyri.is)
Hér má sjá ársreikninga Akureyrarbæjar.