Sýning á verkum Ragnheiðar Bjarkar Þórsdóttur undir yfirskriftinni Rýmisþræðir verður opnuð í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, í dagkl. 15:00. Þræðir tengja Ragnheiði Björk við lífið, upprunann og uppsprettuna. Þeir eru í senn efniviðurinn og viðfangsefnið í listsköpun hennar og mynda uppistöðu, ívaf og þannig verkin sjálf. Þráðurinn er eins og blýantur og vefnaður eins og teikning úr þráðum.
Meðan á sýningunni stendur mun Ragnheiður reglulega vinna við vefnað í vefstöðum og myndvefnaðarstól. Sýningin Rýmisþræðir stendur til 25. október og er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17. Eftir brautskráningu frá textíldeild Myndlista- og handíðaskóli Íslands 1984 stundaði Ragnheiður meistaranám í textíl við John F. Kennedy University frá 1984-1985. Hún lauk uppeldis- og kennslufræði frá KHÍ 1990 og lauk M.Ed. námi frá Háskólanum á Akureyri 2009.
Samhliða því að starfa sem textíllistamaður hefur Ragnheiður verið kennari í Verkmenntaskólanum á Akureyri í 27 ár og er jafnframt formaður Félags íslenskra vefnaðarkennara. Ragnheiður var bæjarlistamaður á Akureyri 2014 - 2015.