Ragnar Hólm sýnir í Listhúsi Ófeigs

Á laugardaginn kemur þann 9. apríl kl. 15:00 opnar Ragnar Hólm Ragnarsson myndistarsýningu í Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5 í Reykjavík. Þetta er ellefta einkasýning hans og í annað sinn sem Ragnar hefur einkasýningu í Reykjavík. Yfirskrift sýningarinnar í Listhúsi Ófeigs er „Að norðan“ með tilvísan til viðfangsefnisins og kvæðabókarinnar góðu sem Davíð Stefánsson frá Fagraskógi sendi frá sér árið 1936. Á sýningunni eru 14 vatnslitamyndir, flestar sýna þær landslag og fjöll á Norðurlandi. Við opnunina segir Þorsteinn G Gunnarsson nokkur orð um listamanninn og blúsmaður Íslands, Halldór Bragason, handleikur gítarinn. Sýningin stendur til 4. maí. Ragnar Hólm hefur málað frá unga aldri og á síðari árum náð umtalsverðri leikni í meðferð vatnslita. Hann hefur notið handleiðslu Guðmundar Ármanns Sigurjónssonar myndlistarmanns í um áratug og sótt námskeið hjá hinum þekkta sænska vatnslitamálara Björn Bernström. Í maí verður Ragnar í Frigiliana á Spáni og nýtur þar tilsagnar þýska vatnslitamálarans Klaus Hinkel. Ragnar er einn af fjórum Íslendingum sem boðið hefur verið að sýna á samsýningu 250 evrópskra vatnslitamálara í Avignon á Suður-Frakklandi í nóvember 2016.

 

 

Nýjast