Ráðstefna um heilsueflingu á vegum HA

Í tilefni af Landsmóti UMFÍ mun Háskólinn á Akureyri standa fyrir ráðstefnu um heilsueflingu. Þar munu sérfræðingar frá Lýðheilsustöð og Háskólanum á Akureyri ræða um rannsóknir á heilsufari og líðan. Meðal annars verður leitað svara við eftirfarandi spurningum: Hvernig má mæla heilsufar? Hversu gott er heilsufar Íslendinga? Hvernig má hafa áhrif á heilsufar með breytingum á lífsstíl? Hafa íþróttir forvarnagildi?

Ráðstefnan fer fram á Borgum við Norðurslóð, miðvikudaginn 8. júlí og stendur frá 17 til 19. Dagskrána má sjá hér að neðan.

Dagskrá:

Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri
Hvernig mælum við heilsu?

Sonja Stellý Gústafsdóttir, iðjuþjálfi
Geðrækt - geðheilsa - geðheilsuefling

Sigríður Halldórsdóttir, prófessor, Háskólanum á Akureyri
Áhrif hreyfingar á ónæmiskerfið

Héðinn S. Björnsson, verkefnisstjóri fræðslumála, Lýðheilsustöð
Lífsstíll, heilsa og líðan

Árún K. Sigurðardóttir, Dósent, deildarforseti heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri
Heilbrigður lífsstíll og sykursýki

Þóroddur Bjarnason, prófessor, Háskólanum á Akureyri
Hafa íþróttir forvarnagildi?

Fundarstjóri: Kjartan Ólafsson, lektor við Háskólann á Akureyri

Aðgangur er ókeypis og öllum heimilt að mæta, segir á vef Háskólans.

Nýjast