Félög Vinstri grænna í Skagafirði og Húnavatnssýslum skora á Alþingi að stöðva frumvarp ríkisstjórnarinnar sem
galopnar á innflutning á fersku kjöti og kjötvörum til landsins.
Með frumvarpinu er ekki einungis vegið að einstökum atvinnugreinum heldur afkomu heilu landshlutanna ásamt því að sjúkdómavörnum og
öryggi neytenda er teflt í tvísýnu. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, sem jafnframt fór með
ráðuneyti landbúnaðarmála gaf vilyrði fyrir óheftum innflutningi á hráu kjöti og kjötvörum. Ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar hyggst nú fullkomna það verk með lagasetningu. Sem fyrr er um algert sinnuleysi að ræða gagnvart
séríslenskum hagsmunum og möguleikum okkar að fá tillit til þeirra tekið í samningum og við lagasetningu. Enginn landshluti á eins mikið
undir landbúnaði og kjötvinnslu eins og Skagafjörður og Húnavatnssýslur. Með frumvarpinu er ráðist gegn afkomu heils landshluta. Því
er skorað á ríkisstjórnina að draga frumvarpið til baka og taka þessi málefni til vandaðri meðferðar.