Kristín Sóley Sigursveinsdóttir hefur verið ráðin verkefnisstjóri vegna komu flóttafólks frá Sýrlandi til Akureyrar til eins árs. Kristín er iðjuþjálfi og hefur meistarapróf í opinberri stjórnsýslu. Undanfarið hefur hún starfað sem lektor við Háskólann á Akureyri en var áður framkvæmdastjóri búsetudeildar Akureyrarbæjar. Kristín Sóley tekur nú þegar þátt í undirbúningi fyrir komu flóttafólksins sem væntanlegt er eftir áramótin en tekur formlega við starfi verkefnisstjórans í byrjun janúar. Til Akureyrar koma fjórar fjölskyldur, samtals 23 einstaklingar. Búið er að gera leigusamninga vegna íbúða fyrir fólkið og Rauði krossinn sér um að innrétta þær. Rauði krossinn hefur einnig valið stuðningsfjölskyldur og sér um fræðslu þeirra. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar.