Fyrrverandi aðstoðamaður landbúnaðarráðherra tilkynnti framboð til formanns Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi flokksins sem fram fór í Hofi á Akureyri í gær.
Sigurður Ingi Jóhannson forsætisráðherra lýsti því yfir að hann ætli ekki að gefa kost á sér áfram sem varaformaður ef stjórn flokksins verður óbreytt en hann hefur ekki tilkynnt að hann ætli fram gegn formanni flokksins, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Mörgum Framsóknarmönnum var brugðið samkvæmt heimildum dagskráarinnar.is vegna þessa ágreinings sem virðist vera kominn upp á milli formanns og varaformanns flokksins
Til að toppa undrun fundargesta steig Sveinbjörn Eyjólfsson, forstöðumaður Nautastöðvarinnar á Hvanneyri og fyrrverandi aðstoðamaður Guðna Ágústssonar í landbúnaðarráðuneytinu, í pontu og tilkynnti að hann hyggðist gefa kost á sér í kjöri til formanns flokksins. Hann segist þó draga framboð sitt til baka ef Sigurður Ingi ákveður að gefa kost á sér.