"Óskynsamleg tímasetning" segir varaþingmaður Framsóknarflokksins

Hjálmar Bogi Hafliðason. Mynd/aðsend
Hjálmar Bogi Hafliðason. Mynd/aðsend

Athygli vakti í gær þegar flokksmenn Framsóknarflokksins á Akureyri birtu áskorun til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra um að segja af sér. Þeir telja að trúnaðarbrestur hafi skapast á milli forsætisráðherra og flokksmanna.

Sjálfur gaf Sigmundur Davíð lítið út á þetta útspil Akureyringanna í samtali við Bylgjuna í morgun, „Það voru kannski ekki svo mik­il ný tíðindi í því held­ur hvað varðaði þann hóp, sem þar var um að ræða,“ sagði Sig­mund­ur. Hann bætti jafnframt við að hóp­ur­inn hefði áður skrifað grein­ar á sömu nót­um þegar þeir hefðu viljað ann­an en hann í stöðu for­manns. Þarna væri um af­markaðan hóp að ræða sem hefði ekki tal­ist til stuðnings­manna hans.

„Aðal­atriðið í þessu öllu er að ég er í póli­tík af því að ég hafði og hef ennþá mjög sterk­ar skoðanir á því hvað þyrfti að gera hér á Íslandi þannig að ég geri eng­ar at­huga­semd­ir við það að fólk  hafi ólík­ar skoðanir á mér. Ég er í þessu bara vegna þess að ég hef trú á ákveðnum hlut­um,“ sagði Sig­mund­ur Davíð.

Hjálmar Bogi Hafliðason varaþingmaður Framsóknarflokksins og varafulltrúi B-lista í sveitarstjórn Norðurþings er ósáttur við þennan leik Akureyringa. Hann segir að auðvita tali menn saman í Framsóknarfélagi Þingeyinga, „svona hugsað hvað skal gera en það hefur ekki komið til að við ætlum að skora á Sigmund Davíð að segja af sér, enda er það ekki þannig sem við gerum hlutina,“ segir hann í samtali við Dagskrána.is. Hann segir að æskilegra sé að koma ánægju sinni eða óánægu til skila eftir öðrum leiðum, annað hvort við Sigmund Davíð beint eða til stjórnar flokksins, „ég er búinna að koma því áleiðis að sumir eru ósáttir,“ segir hann.

Honum finnst tímasetning þessarar áskorunar afar óheppileg, „Þetta er ekki vinsældar keppni, eins og að birta þetta á Facebook vitandi að þetta fari í fjölmiðla. Kannski var búið að tala við þetta fólk um að bíða aðeins eftir deginum í dag, því hann mun ráða ansi miklu, ráða svolítið úrslitum. Það lá ekkert á. Hafi menn þessa skoðun að vilja Sigmund frá, þá áttu menn að láta daginn í dag líða. Það er hann sjálfur sem mun skipta svolítið máli, því það er eftir daginn í dag sem hann sér hvort honum er yfirhöfuð stætt. Mér finnst þetta óskynsamleg tímasetning núna, því það lá ekkert á,“ Segir Hjálmar Bogi

Persónulega segist Hjálmar Bogi vera á móti þessari hugmyndafræði að geyma peninga í skattaskjólum, „ ef það er ekkert skattalegt hagræði af því að geyma peningana sína þarna, hversvegna gera menn það þá? Það er eina svarið sem mig vantar í raun frá Sigmundi,- afhverju voru þessir peningar þarna úti yfir höfuð?“

/EPE

Nýjast