Sérstaklega verður horft til hönnunar, frágangs lóðar/athafnasvæðis, viðhalds, hirðingar, umgengni, fjölbreytilegs plöntuvals, aðlaðandi götumyndar o.fl. Ef þurfa þykir getur dómnefnd ákveðið önnur áhersluatriði en fyrr eru nefnd og veitt viðurkenningar samkvæmt því.
Dómnefnd ákveður hversu margar viðurkenningar eru veittar í hverjum flokki. Heimilt er að fella niður úthlutun viðurkenningar í einstökum flokkum, ef sýnt þykir að enginn standist ofangreindar viðmiðanir.
Tekið er á móti ábendingum í netfangi jbg@akureyri.is frá 5. ágúst til og með 20. ágúst og í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar í síma 460 1000.
www.akureyri.is