238 greiddu atkvæði í kosningunni en 374 voru á kjörskrá. Höskuldur Þórhallsson steig í pontu eftir að úrslitin voru ljós og lýsti því yfir að hann myndi ekki sækjast eftir sæti á listanum.
Að minnsta kosti níu þingmenn flokksins sækjast því ekki eftir endurkjöri eða hafa tapað í prófkjöri. Framsóknarflokkurinn fékk í síðustu kosningum nítján þingmenn kjörna.
Þórunn Egilsdóttir varð í öðru sæti í kosningunni - hún fékk 39 atkvæði eða 16,6 prósent. Hún var sjálfkjörinn í annað sætið eftir að Líneik Anna Sævarsdóttir lýsti því yfir að hún myndi ekki gefa kost á sér í það sæti. Líneik fékk aðeins tvö atkvæði í kosningunni um efsta sætið, segir á vef Rúv.