Opnar þrjá veitingastaði á sama blettinum

Hallgrímur verður viðloðandi fjögur veitingahús á Akureyri innan skamms. Mynd/Þröstur Ernir
Hallgrímur verður viðloðandi fjögur veitingahús á Akureyri innan skamms. Mynd/Þröstur Ernir

Hallgrímur Friðrik Sigurðarson matreiðslumeistari mun ásamt konu sinni Þóru Hlynsdóttur og hjónunum Ómari Vali Steindórssyni og Sæbjörgu Rut Guðmundsdóttur matreiðslumeistara opna þrjá nýja veitingastaði sem allir verða staðsettir á Ráðhústorginu á Akureyri. Hallgrímur segir að algjörlega nýtt fyrirtæki sé að ræða, en nú þegar hefur fyrsti staðurinn verið opnaður, Kung Fu Express, sem var opnaður 17. júní sl. þar sem sushi er í fararbroddi ásamt öðru skyndifæði með asískum áhrifum.

Einnig mun T-Bone steikhús opna innan skamms, en eins og nafnið ber með sér verða þar lagðar áherslur á úrvalssteikur. Þriðji staðurinn hefur hlotið nafnið Ölhúsið þar sem áhersla verður lögð á mikið úrval af öli. Nánar er fjallað um málið og rætt við Hallgrím í prentútgáfu Vikudags.

-þev

Nýjast