Öldungaráð Akureyrar fundaði í fyrsta sinn á dögunum en ráðið er skipað þremur fulltrúum frá Félagi
eldri borgara á Akureyri og tveim fulltrúum úr bæjarstjórn. Hlutverk ráðsins er að vera bæjarstjórn, nefndum og ráðum, til ráðgjafar um málefni og hagsmuni bæjarbúa 60 ára og eldri. Ráðið á stuðla að upplýsingagjöf og samstarfi, móta stefnu og gera tillögur til bæjaryfirvalda. Öldungaráðið er vettvangur samráðs bæjarbúa 60 ára og eldri, félagasamtaka þeirra, atvinnulífs og bæjarins, og er virkur þátttakandi í allri stefnumótun málaflokksins eins og segir í samþykkt ráðsins.
Öldungaráð var sett á fót að áskorun Félags eldri borgara á Akureyri og Landssambands eldri borgara. Slík ráð eru þegar tekin til starfa í
nokkrum öðrum sveitarfélögum. Á fyrsta fundinum fór ráðið yfir verksvið sitt og ákvað að kalla eftir upplýsingum og samræðum við þá sem bera
ábyrgð á þjónustu við aldurshópinn. Ráðið mun einnig skoða þá málaflokka og þjónustu sem skiptir miklu máli
fyrir eldri borgara t.d. skipulagsmál, leiðakerfi SVA og fleira. Framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar starfar með ráðinu, er segir á frétt á vef Akureyrarbæjar.