Ökumaður og farþegi fluttir á sjúkrahús eftir útafakstur

Ökumaður og farþegi voru fluttir á slysadeild FSA til skoðunar, eftir að jeppabifreið fór út af Hlíðarfjallsvegi ofan Akureyrar, skömmu fyrir hádegi í dag. Ekki er talið að um alvarleg meiðsli sé að ræða. Bíllinn, sem var á leið niður Hlíðarfjallsveg, fór fram af háum kanti en hafnaði á hjólunum utan vegar en snéri þó á móti akstursstefnu sinni.

Nýjast