Ofurþéttingarárátta samtímans

„Öndum ofan í maga, bíðum þess að slái á ofur-þéttingar-áráttu samtímans,“ segir Jón Hjaltason í bók…
„Öndum ofan í maga, bíðum þess að slái á ofur-þéttingar-áráttu samtímans,“ segir Jón Hjaltason í bókun um Akureyrarvöll.

Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur lagt til að bæjarstjórn samþykki tillögu að breytingu á aðalskipulagi 2018-2030. Í greinargerð segir að gert sé ráð fyrir að uppbygging hefjist fyrst á svokölluðum Tjaldsvæðisreit auk þess sem unnið verði að undirbúningi uppbyggingar til blandaðrar landnotkunar á Akureyrarvelli.

„Í bígerð er gríðarleg þétting byggðar, bæði norðan hans og sunnan“ segir í bókun Jóns Hjaltasonar óflokksbundins og þar vísað til Akureyrarvallar. „Því er engan veginn tímabært að leggja út í kostnað við framtíðarskipulag vallarins.“

Jón leggur til að þess í stað verði rifnar niður girðingar sem umlykja völlinn og gera hann þannig aðgangsvænni.

„Öndum ofan í maga, bíðum þess að slái á ofur-þéttingar-áráttu samtímans. Og sannið þið til, innan fáeinna ára verða forsendur fyrir skipulagi Akureyrarvallar gjörbreyttar og allt aðrar en nú liggja til grundvallar því skipulagsslysi sem stefnir í með nýtt og þéttbyggt blokkahverfi á tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti.“

Nýjast