Með þessu vilja ráðherrarnir gefa háskólanemum möguleika á að stunda sumarvinnu við nýsköpun og rannsóknir og undirstrika
þannig mikilvægi rannsókna og nýsköpunar í uppbyggingu Íslands. Stuðningur ráðuneytanna tveggja gerir
Nýsköpunarsjóði námsmanna kleift að auglýsa eftir umsóknum að nýju. Nýsköpunarsjóður námsmanna hefur
þótt spennandi kostur í tengslum við sumarvinnu, bæði fyrir háskólanema sem hafa hugmyndir að sjálfstæðum
rannsóknarverkefnum og sérfræðinga sem ráða vilja til sín háskólanema í sumarstörf. Styrkir verða veittir til
rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og
fyrirtækja. Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu
í viðkomandi fræðigrein. Umsóknarfrestur er til 3. júní nk.
Úthlutað var úr Nýsköpunarsjóði námsmanna fyrir skömmu en fjöldi umsókna í Nýsköpunarsjóð
jókst umtalsvert milli ára. Vorið 2008 bárust alls 187 umsóknir, í ár bárust 316 umsóknir. Umsóknum fjölgaði
því um u.þ.b. 69% milli ára. Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður að frumkvæði stúdenta árið 1992 til
þess að útvega áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarefni. Markmið sjóðsins er að gefa
háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi við háskóla í
sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni sem stuðla að nýsköpun og auknum tengslum atvinnulífs, stofnana og háskóla.