Á morgun laugardag kl. 11.00 verður vígður formlega nýr göngustígur í Naustaborgum, nyrst í landi Kjarnaskógar.
Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur haft veg og vanda af því að búa stíginn til fyrir styrk frá Samherja hf.
Þessi afhending markar lokin á styrkveitingum ársins til eflingar íþróttastarfi barna og unglinga og átakinu "Hreyfing og
útivist" ,sem hrint var af stað í desember sl. Þetta kemur fram á vef Samherja.