Nýr framkvæmdastjóri MAk

Menningarfélag Akureyrar hefur ráðið Þuríði Helgu Kristjánsdóttur í starf framkvæmdastjóra.  Þuríður hefur starfað sem mannauðs- og verkefnastjóri hjá Norræna húsinu undanfarin átta ár. Þar annaðist hún verkefnastjórn smárra og stórra viðburða, fjárhagsáætlanagerð, mannauðsstjórnun og stefnumótun, var staðgengill forstjóra og starfaði sem fjármálastjóri Norræna hússins í tvö ár.

Þuríður hefur lokið MA-prófi í mannauðsstjórnun, kennsluréttindanámi og BA-prófi í myndlist. Frá þessu er greint á heimasíðu Menningarfélagsins.

Nýjast