Nýr formaður Hugins, nemenda- félags MA, sagði af sér

Nýkjörinn formaður Hugins, nemendafélags Menntaskólans á Akureyri, Benjamín Freyr Oddsson, sagði af sér í dag. Eins og fram kom í Vikudegi í gær kom upp ósætti innan nýrrar stjórnar nemendafélagsins og var í gangi undirskriftalisti innan skólans um að formaðurinn segði af sér. Benjamín steig í ræðustól í frímínútum í skólanum í morgun og tilkynnti þar afsögn sína. Því þarf að kjósa nýjan formann, eða inspector scholae og verður það gert í næstu viku. Ný stjórn tók við nemendafélaginu um síðustu mánaðamót en í ferð sem viðtakandi og fráfarandi stjórnir fóru saman í mun hafa komið upp ósætti innan nýju stjórnarinnar, sem leiddi til þessarar niðurstöðu.

Nýjast