Parki Interiors opnaði í dag nýja afar rúmgóða og glæsilega verslun við Sjafnargötu 1b á Akureyri. Parki er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Íslandi og hefur á undanförnum árum byggt upp öflugt vöruúrval og sérþekkingu á sviði innréttinga og hönnunar.

Verslunin er við Sjafnargötu 1b
Fjölbreytt úrval undir einu þaki
Í nýjum sýningarsal Parka má meðal annars finna parket, flísar, innihurðir, gólfteppi, dúkaloft, kerfisloft og vandaðar innréttingar. Markmiðið er að bjóða upp á heildarlausnir fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir.

Sýningarsalir er bjartir og rúmgóðir
Mikil eftirspurn á Norðurlandi
Parka hefur um nokkurt skeið fundið fyrir aukinni eftirspurn eftir breiðara vöruúrvali og þjónustu nær viðskiptavinum á Norðausturlandi. Fyrirtækið rekur fyrir stóra verslun við Dalveg í Kópavogi og er opnunin á Akureyri eðlilegt næsta skref í uppbyggingu þjónustunnar.
„Við erum afar spennt fyrir því að geta þjónustað viðskiptavini okkar úti á landi enn betur. Við finnum fyrir mikilli þörf og eftirvæntingu á Eyjafjarðarsvæðinu og víðar fyrir norðan og austan,“ segir Gústaf B. Ólafsson, framkvæmdastjóri Parka.
Persónuleg þjónusta á Akureyri
Gunnar Björgvin Arason, verslunarstjóri Parka á Akureyri, segir opnunina mikilvægt skref fyrir fyrirtækið og viðskiptavini á svæðinu. Hann segir starfsfólk verslunarinnar hlakka til að taka á móti bæði nýjum og núverandi viðskiptavinum.

Gunnar Björgvin Arason, verslunarstjóri
Parki er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Íslandi og hefur á undanförnum árum byggt upp öflugt vöruúrval og sérþekkingu á sviði innréttinga og hönnunar.