Rachael Lorna Johnstone tók nýverið við starfi prófessors við Háskólann á Grænlandi (Ilisimatusarfik). Rachael er prófessor og formaður lagadeildar við Háskólann á Akureyri en hún fer í árs rannsóknarleyfi nú í sumar. Rachael mun ásamt prófessor Anne Merrild Hansen, stýra nýju rannsóknarstofnuninni um olíu og gas á norðurslóðum (Arctic Oil and Gas Research Centre).
„Við erum að stýra rannsóknarstofnun sem opnuð var við hátíðlega athöfn 16. mars síðastliðinn,“ segir Rachael í samtali við Dagskrána.is.
Þar kynnti Tine Pars rektor háskólans, rannsóknastofnunina og nýju forstjórana, sem báðir fluttu erindi. Anne kynnti starfsemi stofnunarinnar og helstu forgagnsverkefni. Rachael ræddi mikilvægi lagakerfisins í stjórnun kolvetnis-aðgerða og Anne fjallaði um nauðsynleg skilyrði í árangursríku umhverfis- og félagsmati.
„Við erum að leggja áherslu á Grænland fyrst og fremst,“ segir Rachael.
„Við erum sem sagt að skoða hvernig hægt er að tryggja að olíu- og gasiðnaðurinn sé notaður til að aðstoða og byggja upp samfélag á Grænlandi,“ segir Rachael. „Við erum að skoða þessi félagslegu áhrif olíu- og gasvinnslu.“
Yfir fimmtíu manns mættu á opnunina og tóku virkan þátt í umræðu um vonir þeirra og væntingar til stofnunarinnar. /EPE.