Alls níu framboðlistar bárust yfirkjörstjórn á Akureyri og voru þeir úrskurðaðir gildir fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram 14. maí nk.
Þetta eru listarnir sem verða í framboði laugardaginn 14. maí næstkomandi:
B-listi Framsóknarflokksins, D-listi Sjálfstæðisflokksins, F-listi Flokks fólksins, K-listi Kattaframboðs, L-listinn bæjarlisti Akureyrar, M-listi Miðflokksins, P-listi Pírata, S-listi Samfylkingarinnar, og V-listi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs.