Níutíu af hundraði 10. bekkinga hafa skráð sig í framhaldsskóla

Forinnritun í framhaldsskóla á haustönn 2016 lauk á miðnætti 10. apríl.  Umsóknir bárust frá 90% nemenda úr 10. bekkjum grunnskóla landsins. Nemendur sem vilja breyta umsóknum sínum geta gert það á tímabilinu 4. maí til 10. júní. Ef engra breytinga er þörf stendur umsókn úr forinnritun óbreytt og fer til þeirra skóla sem sótt var um.

Nýjast