Oddvitar nágrannasveitarfélaga Akureyrar, Hörgárbyggðar og Svalbarðsstrandarhrepps eru ósammála samgönguráðherra sem hefur
viðrað þá skoðun sína að sveitarfélögum verði að fækka þó svo að beita þurfi til þess valdboði.
Kristján L. Möller samgönguráðherra vill helst að lámarksíbúatala hvers sveitarfélags sé 1000 manns en hún er nú 50
manns. Sveitarfélögum hefur fækkað umtalsvert á liðnum árum, þau voru 200 árið 1990 en eru nú 79 talsins, í 46 þeirra eru
íbúar færri en 1000. Ríflega 400 manns búa í Hörgárbyggð, sveitarfélagi sem varð til með sameiningu þriggja hreppa fyrir
nokkrum árum. "Mér finnst ekkert aðkallandi að fara út í frekari sameiningu, en veit að Akureyringa dauðlangar að sameinast okkur, líklega
vegna þess lands sem við höfum yfir að ráða," segir Helgi B. Steinsson á Syðri-Bægisá, oddviti Hörgárbyggðar. Hann segir
afkomu sveitarfélagsins góða og menn finni ekki fyrir fámenninu "Það er alltaf afstætt hvað er rétt stærð, það fer
auðvitað svolítið eftir því hvernig dreifbýli og þéttbýli fara saman," segir Helgi. Að hans mati er sameining sveitarfélaga
með þvingunum neyðarúrræði. Frjálsar sameiningar að undangengnum viðræðum sé það sem koma skal. Helgi segir að
vissulega geti sú staða komið upp að sveitarfélög ráði ekki við verkefni sín og þá leiti þau samvinnu eða samstarfs við
nágranna sína. "Það er algjört neyðarúrræði að þvinga menn saman og mér finnst stökkið líka mikið,
frá 50 upp í þúsund."
Guðmundur Bjarnason í Svalbarði, oddviti Svalbarðsstrandarhrepps er einnig ósammála ráðherra og nefnir að sveitarfélög með
eitt þúsund íbúa geti líka átt erfitt uppdráttar svo sem dæmin sanni. "Sveitarfélög með 1-2 þúsund
íbúa eiga langerfiðast," segir hann og bendir á að þau þurfi að vera umtalsvert stærri. Guðmundur segir rekstur Svalbarðsstrandarhepps
ganga vel og á þessari stundu sé ekkert sem kalli á sameiningu við annað sveitarfélag. Hvað síðar verði komi í ljós,
en vissulega horfi menn að sumu leyti til sameiningar við Akureyri þegar fram líða stundir. "Það er lang eðlilegast að menn leysi sín
mál heima í héraði, að farið verði í viðræður um sameiningu þegar og ef menn óska þess sjálfir, ekki með
valdboði ofan frá," segir hann.