Nettóverslun opnar á Húsavík á morgun

Nettó merkingar settar upp á Garðarsbrautinni í gær. Mynd H.Kr.
Nettó merkingar settar upp á Garðarsbrautinni í gær. Mynd H.Kr.

Síðustu vikur hefur verið hamast við breytingar á húsakynnum Samkaups Úrvals að Garðarsbraut 4 á Húsavík og verður Úrvals verslun breytt í Nettó.  Nettó verslunin verður byggð upp í sama stíl og aðrar Nettó verslanir þar sem áhersla er lögð á lágt verð og mikið vöruval.  

Mikið og gott úrval verður í ferskvöru svo sem kjöti og sett hefur verið  upp rakakerfi á grænmetistorgi sem tryggir aukinn ferskleika ávaxta og grænmetis. Auk þess verður boðið upp á „Bakað á staðnum“ sem notið hefur mikilla vinsælda í Nettó verslunum, enda lagt upp með mikil gæði, lágt verð og regluleg tilboð. Ný verslun verður um 550 fermetrar með um 15.000 vörunúmer. Laufey Einarsdóttir verður verslunarstjóri í nýju Nettó versluninni, sem verður opnuð á hádegi á morgun, föstudag. JS

Nýjast