Lögreglan á Norðurlandi eystra minnir okkur á að nú þegar 3 maí sé upp runninn og tíðin loksins góð og útlitið eftir því sé rík ástæða til þess að taka nagladekkin undan og njóta þess að aka um án þess að heyra klórið í nöglunum.
Lögreglan minnir einnig á að ,, aka varlega og sýna öðrum vegfarendum tillitssemi og virðingu. Já og svo er bara mjog gott ad fá sér ís í góða veðrinu“ eins og segir í tilkynningu frá lögreglunni