Nægt framboð lóða í Eyjafjarðarsveit

Íbúar í Eyjafjarðarsveit hafa náð því marki að verða fleiri en eitt þúsund, í fyrsta sinn við formlega mannfjöldaskráningu sem miðar við 1. desember ár hvert. Bjarni Kristjánsson sveitarstjóri segir að þetta sé í fyrsta sinn sem íbúafjöldinn fari yfir eitt þúsund við formlega skráningu, en vissulega hafi þeir af og til náð þeirri tölu áður.  „Það er stígandi í þessu," segir hann.  Hann væntir þess að íbúatalan haldi áfram að hækka og nefnir að nægt framboð sé á lóðum um þessar mundir í sveitarfélaginu.  Þannig eru lausar 15 lóðir á nýjum skipulagsreit í Reykárhverfi, þegar hafa borist 9 umsóknir um lóðirnar, en umsóknarfestur rann út í vikunni. „Það var lítið byggt í sveitarfélaginu í fyrra, sem hélst í hendur við lítið framboð lóða.  Nú eru nógar lóðir tilbúnar, en vissulega gæti ástand efnahagsmála sett strik í reikninginn, það er ómögulegt að segja hver þróunin verður," segir Bjarni.

Nýjast