Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar (MAk), segir í samtali við Vikudag að ekki sé búið að ákveða hvernig brugðist verður við fjárhagsvandræðum félagsins. Unnið sé að því að greina vandann. Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum nýverið að greiða Menningarfélagi Akureyrar fyrirfram hluta þess fjár sem því er ætlað á þessu ári. Ástæðan er lausafjárvandi félagsins. Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu blaðsins.
-Vikudagur, 7. apríl