Mótmælir niðurskurði svæðis- stöðva RÚV á landsbyggðinni

Stjórn Samfylkingarinnar á Akureyri hefur sent frá ályktun, þar sem hún harmar og mótmælir niðurskurði svæðisstöðva Ríkisútvarpsins á landsbyggðinni. Stöðvarnar hafi gengt mjög mikilvægu félagslegu og menningarlegu hlutverki á þeim svæðum sem þær hafa þjónað.  

Ennfremur segir í ályktuninni. "Það ber að líta á aðgerðir stjórnenda Ríkisútvarpsins ohf sem landsbyggðarfjandsamlegar og það má furðulegt teljast að þeim sömu stjórnendum skuli detta í hug að ráðast að þessari mikilvægu starfssemi útvarps allra landsmanna úti í hinum dreifðu byggðum. Samfylkingin á Akureyri skorar á ráðherra menntamála og ríkisstjórnina alla að hafa vit fyrir stjórnendum Ríkisútvarpsins og sjá til þess að þessi skammsýna og fjandsamlega atlaga fyrirtækis í eigu allra landsmanna að landsbyggðinni verði ógilt og starfssemi svæðisstöðvanna verði haldið óbreyttri þannig að hún geti áfram þjónað svæðum þar sem þær gegna lykilhlutverki."

Nýjast