Minna um útköll hjá Slökkviliði Akureyrar

Verslunarmannahelgin var róleg hjá Slökkviliði Akureyrar og voru útköll í mun minna mæli miðað við undangengnar verslunarmannahelgar. Sjúkraflutningamenn liðsins ásamt fyrstu hjálpar liðum frá Rauða krossinum voru í miðbæ Akureyrar yfir næturtímann um helgina.

Þessi hópur nýttist til allra minni háttar aðstoðar til að mynda ef um minni háttar sár og skurði var að ræða og leysti þau verkefni. Þessi aðferð var reynd í fyrsta skipti um síðustu verslunarmannahelgi og mæltist vel fyrir. Með þessu móti var mögulegt að draga úr álagi á slysadeild og á vakthafandi vakt hjá slökkviliðinu, segir á vef slökkviliðsins.

Nýjast