02. febrúar, 2009 - 14:30
Mikill meirihluti svarenda er á móti því að nota salt til hálkuvarna á ákveðnum svæðum á Akureyri, samkvæmt
óformlegri skoðanakönnun á vef Vikudags. Alls bárust um 800 svör við spurningunni og 73% aðspurða eru á móti saltnotkun til
hálkuvarna, 25% svarenda eru því fylgjandi en 2% hafa ekki skoðun á málinu.
Ný könnun hefur verið sett á vef Vikudags, þar sem spurt er um afstöðu fólks til nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri
hreyfingarinnar græns framboðs.