24. febrúar, 2008 - 11:26
Mikil óánægja er innan Siglingaklúbbsins Nökkva með þær fyrirætlanir bæjaryfirvalda á Akureyri að fresta framkvæmdum
við uppbyggingu fyrir siglingamenn. Rúnar Þór Björnsson formaður Nökkva og félagar hans hafa eytt mörgum árum í undirbúning
þessa verkefnis og hann er allt annað en ánægður með stöðuna. Hann sagði að ekki yrði hlaupið að því að fá
fólk til starfa fyrir klúbbinn í framhaldinu og að mönnum væri skapi næst að skila inn lyklunum að starfseminni og eftirláta bænum
reksturinn.
Bæjaryfirvöld höfðu ákveðið að leggja fram 10 milljónir króna í ár til framkvæmda og sömu upphæð á
næsta ári en nú hefur verið hætt við það. Þau benda á að framkvæmdin kalli á breytingu á aðalskipulagi og
deiliskipulagi svæðisins og jafnvel að landfylling þar þurfi í umhverfismat.