Mikil aukning á gestakomum í upplýsingamiðstöðina á Akureyri

Á fundi stjórnar Akureyrarstofu nýlega var farið yfir þjónustu upplýsingamiðstöðvarinnar í sumar, reksturinn það sem af er ári og stefnu til framtíðar. Mikil aukning varð á gestakomum í miðstöðina, í júlí komu að meðaltali 856 manns á dag í samanburði við 678 gesti í júlí 2008.  

Mikil ásókn var í gistingu og bílaleigubíla og á köflum reyndist erfitt að mæta öllum óskum um þá þjónustu. Alls voru heimsóknir í júní, júlí og ágúst 55.953 sem er 19,8% aukning frá fyrra ári.

Nýjast