14. febrúar, 2008 - 15:32
Töluvert hefur verið um það í vetur að keyrt hafi verið á ljósastaura og umferðarljós og segir Gunnþór Hákonarson
verkstjóri hjá framkvæmdadeild Akureyrarbæjar að mikið tjón hafi hlotist af. „Já það hefur verið óvenju mikið um að
ekið hafið verið á þetta. Allt er þetta að vísu tryggt en engu að síður er þarna um að ræða mikið tjón,"
sagði Gunnþór. Alls hafa orðið tjón á átta umferðarmerkjum, fimm umferðarljósamöstrum eða gangbrautarljósum og fimm
ljósastaurum. Nánar er fjallað um þetta mál í Vikudegi í dag.